|
|
20.02.2007 17:16:13 / oliingi
  Tussahelvíti.Haldiði að ég hafi ekki
gripið kulda.Og ef það er eitthvað sem ég þoli ekki þá er það
að vera með kulda.Stíflað nef,nefrennsli,aumur nefbroddur
ofl.Djöfull hata ég þetta.En,hvað er málið með samkynhneigða
og júróvisjón?
»
11.02.2007 23:29:59 / oliingi
Hversu oft
höfum við heyrt eða notað málshætti.Málshætti sem við jafnvel
vitum ekkert hvað þýðir.Þannig að saman ætlum við að uppfæra
og jafnvel búa til nýja málshætti sem eru svona meira í takt
við tímann.Mér datt til dæmis í hug einn:Sjaldan er einn
perrinn stakur á msn-inu. Svo annar:Oft er
smjörsýran nauðgurum nauðsyn. og;Aldrei skyldi
köldu kóki neita.
Skjótið.
»
10.02.2007 00:57:55 / oliingi
Jobb!!Ég er bak og jafnvel fyrir gott núna!!Málið er að ég held
ég sé haldinn þýðingarfíkn eða fikilus translatus
Ég held aldrei út eitt samtal eða segi nafn án þess að translatus
láti á sér kræla. Seleb nöfnin eru alltaf í sérflokki
og margir heyrt eða þytt þau,eins og Rykugur Vorvöllur,Högni
Stefáns,Marblettur Vorstáningur,Jonni Skotsilfur og fleiri
góðir.
Og svo eru það vinir og kunningjar sem,ef þeir flyttu til
enskumælandi landa ættu að taka sér þessi nöfn.Ég væri t.d
Unhangin´.Frúin væri Daybright victorypaulsdaughter,Jonna væri(og
hlýtur að nota það úti) Joint herselfburiesdaughter.
Þetta er reyndar langsótt en er ekki að urða það sama og að
jarða,Sig-urðar-dóttir.Svo datt mér í hug um daginn
Fairyhonour Bruisebut eða Álfheiður Maren.Björn Friðþjófsson væri
Bear son of piecethief.osfrv.Endilega hendið
einhverju inn sem ykkur dettur í hug..
Ég verð bak fljótlega.
Unhangin´.
»
12.11.2006 19:14:53 / oliingi
»
09.10.2006 21:47:52 / oliingi
Það ætla
ég svo innilega að vona að RÚV nái að krækja í EM 2008.Þá fer
maður kannski að fá eitthvað fyrir peninginn.Þetta er eins og
að vera áskrifandi að videoleigu en fá aldrei að velja sér
myndir.Mánudagarnir er t.d algjör horror.Eitthvað "rætur
Guðstrúar" dæmi sem ég get ekki ímyndað mér að nokkur maður
horfi á.Þeir eru alveg snillingar að ná í eitthvað svona
ömurlegt sjónvarpsefni.Hver man ekki eftir
spennuþáttunum"Maður er nefndur" þar sem einhver
morfínsjúklingur talaði við ellilífeyrisþega um alls ekki
neitt !"já,hingað til okkar er kominn hann Sigurður úr
sveitinni og hann hefur nú aldeilis sögu að segja" "já,
uummfh ég er 98 ára "Að þessir þættir hafi ekki bara verið á
rás 1 er óskiljanlegt.
Jesús minn.Á meðan ég var að skrifa þetta var kveikt á stöð tvö
inní stofu og þaðan komu svona svaðaleg öskur og ég stökk af stað
og vonaðist til þess að sjónvarpið væri að skána,hélt kannski að
það væri verið að rífa hjartað úr einhverjum .NEI,þetta var
extreme makeover;home edition og þetta voru öskur og grenjur að frá
einhverju fólki sem var að fá eitthvað,þvílík dramatík!Ég held að
það klikki bara aldrei þegar maður slysast til að horfa á svona
kanaþætti eins og þennann og oprah þá er einhver
grenjandi.Alltaf.og alveg sama um hvað er talað.
En svona er allaveganna sjónvarpið
og maður blótar því bara og hugsar sér að fara bara á leiguna.En
þar er bara allt vont.Allt eitthvað númer tvö eða þrjú eða
eitthvað.Final destination 3,scary movie 4,X men
3,undisputed2,basic instinct 2 og fleiri og hver horfir á svona
myndir.Hvar eru nú svona myndir eins og seven,Shawshank
redemption,misery,pulp fiction,snatch og fleiri.Núna eru
þetta bara númer 2,3,4 og svo það heitasta.Einhver
gervihrollvekja með lítilli stelpu með dökkt hár sem er greitt yfir
andlitið á henni og hún er í hvítum náttkjól og er búin að vera
fúna í nokkra áratugi.ég er orðinn of þreyttur í
fingrasetningaputtunum til að fara að skrifa um það allra
versta:The fast and the furious þannig að ég geri bara
svona        
Síðar.....
»
02.10.2006 18:16:22 / oliingi
Hvenær
skyldu kanaskrattarnir fatta að það er ekki alveg að gera sig
að gefa byssur í vöggugjafir!!!!Það er hver skotárásin á
fætur annarri í skólunum.Það liggur við að manni finnist
þetta gott á liðið fyrir að sjá ekki að byssueignin þeirra
hefur útrýmt mun fleiri könum en nokkur hryðjuverk!!
Fór til helvítis í morgun.Ég var nefninlega að mála í ólafsfirði.Ég
yrði fljótur að henda mér í höfnina ef ég þyrfti að búa þarna.Vona
að enginn ólafsfirðingur lesi þetta því þeir eru frekar
ofbeldishneigðir en ég algjör pussa.
Fagna því að sopranos séu byrjaðir aftur.Snilldarþættir þótt
amerískir séu.
Maaatuur!!
»
30.09.2006 00:00:43 / oliingi
Ég held
að ég sé masókisti!!Horfði á innlit útlit um daginn og
bölvaði ógeðiskarlinum sem sér um þáttinn allan tímann í stað
þess að skipta um stöð!!Ég bara varð að sjá hvað hann yrði
asnalegur næst.Gaurinn heitir Arnar Gauti held ég og hvílíkur
hrotti.Hann er svona úber uppa-metró-skeggsnyrtur-uppstylltur
með vísifingurinn svona á kinninni þegar hann byrjar að kynna
e-ð.þau eru þrjú með þáttinn og endirinn er alltaf
rosalegur!!Svo ofæfður og þau öll svo uppstillt,þið verðið að
tékka á þessa og gá hvort að ykkur líður eins og mér.Kannski
er ég bara fordómafullur andskoti en f... it............... .
..
Talandi um fordóma(eða
skrifandi),hvernig væri að flytja bara frystihúsið út til
póllands?
Ég held að dætur mínar séu búnar að horfa aðeins of mikið á
Bamba.Þannig var að Bambi missti mömmu sína þegar hann var lítill
og núna þegar yngri dóttirin sem er þriggja fer að kúka og nær
bara einum litlum þá lítur hún alltaf oní klósettið og segir
"finna ekki mömmu sína"
Síðar...
»
19.09.2006 22:20:52 / oliingi
Fangar
eiga ekki að hafa réttindi!!!!Þetta skrifa ég út af gaurnum í
brasilíu sem vill fá að komast heim. Ég ætla að vona
að hann verði sendur heim með endagörnina á röngunni eftir
alla brassana sem eru eflaust mjög ástríðufullir elskhugar
svona margir saman!!Svona á þetta að vera hér heima,stappa
bara í klefana og láta þá refsa hverjum öðrum!!En nei, það má
ekki.Það gæti skemmt nýju tölvurnar og tölvuborðin sem
fangarnir hafa!!!Ætli hámarksrefsing á Íslandi séu 5 ár og
þar af einn mánuður án adsl tengingar?Sorry Atli minn þú
verður bara að nota innhringisystemið þennan mánuðinn."oh,þá
leiðist mér"common.Fariði að herða refsingarnar hérna á þessu
skeri svo að menn finni almenninlega fyrir því þegar þeir
brjóta af sér.
Vá,brandarinn um hinn "háttsetta" glæpamann suðvesturkjördæmis(held
ég)Árna Jonhsen,hvað er það!?Haldiði að það myndi þýða fyrir Frikka
fyrrum fanga úr breiðholtinu að fá svona afgreiðslu?Held ekki.Svona
starfar bláa höndin.Svo ætlar maðurinn bara að skunda á þing eins
og ekkert sé studdur af einhverjum hræðum út í óveruleikaeyjum sem
halda að hann syngi göng til eyja.Þeim er þá óhætt að fara
telja og bolta niður stólana í alþingishúsinu ef Árni"The
Thug"mætir.
------------------------------------------------------------------------------------------------
Það er að byrja enn einn nýr hlæábakvið þáttur á stöð 2.Með
enn einum leikaranum sem er hættur að fá hlutverk."Freddie" heitir
hann eftir freddie prince jr.Hversu þreytt er þetta
orðið?"joey","Phoebe",2 and a half men"þátturinn með þarna Belushi
gaurnum að ógleymdum Lopez viðbjóðnum og allir snúast þessir þættir
um stofuna,eldhúsið og hurðina sem sveiflast alltaf svona á milli
þar sem einhver kemur inn og segir eitthvað og allt verður
vitlaust úr hlátri.Spáiði aðeins í það í huganun hvað þið getið
fundið marga ameríska þætti þar sem sviðsmyndin er alltaf
eins,svona Cosby show uppstilling,stigi, sófinn og svo þessi
djöfuls sveifluhurð inní eldhúsið sem er alltaf með hurð út þar sem
leiðinlegir ættingjar,vinir eða nágrannar koma inn og fá
hlæ!Dettur strax í hug Everybody loves Raymond sem er bara
lygi,ég hat´ann.Kæru lesendur nú spyr ég ykkur:Finnst YKKUR svona
hlæábakvið þættir skemmtilegir?
Mér finnst að það mættu vera fleiri svona þættir eins og huff eða 6
feet under.
---------------------------------------------------------------------------------------------
ég vil enda þetta á að þakka Magna fyrir að koma íslenska skallanum
á heimskortið.En mér finnst þú samt ennþá
ömurlegur
»
03.08.2006 21:32:00 / oliingi
Það er rosalegt að vakna á
fimmtudagsmorgnum eftir miðvikudagskvöld fyrir framan skjá 1
eftir rock star og L-word!
Dude,awesome,man,jú rock,ég þarf alltaf að fá zinger borgara í
hádeginu á sunnudögum,öll fjölskyldan er sammála um kfc,how about a
pepsi max,adam og eva hafa nú opnað nýja verslun á horni
vitastígs,don´t worry,there´s no sugar,salatbakkinn á kfc,engin
spurning,adam og eva sunnuhlíð verður opin alla
verslunarmannahelgina til tíu .
Hvað á maður annars að segja um hann Magna?Það væri
náttúrulega djöfullegt að þurfa éta allan skítinn oní sig aftur sem
maður hefur sagt um manninn!!Ég held bara að málið sé að allir
hinir séu svo slakir og hann er ekki að fara neitt á meðan þessar
kellingar hanga endalaust inni.Það er hugsanlega ein sem gæti
hangið og jafnvel farið langt á viskíröddinni.Ég þoli ekki þennan
Lukas þarna .
Allt þar til rock star byrjaði þá man ég ekki eftir
neinum(jú,ok,Sævari Ey)sem sagði að Magni væri góður söngvari!En nú
tala allir um það.
Hvað segir þetta okkur?jú,rokkið sigrar alltaf!!!!
--------------------------------------------------------------------
Hvað er málið með Keflvíkinga!!? .Maður les ekki blöðin eða
heyrir ekki fréttir án þess að það komi eitthvað"líkamsárás fyrir
utan Traffic","manni rænt í keflavík",og einhvern veginn virðast
Keflvíkingar alltaf tengdir morðum sem framin eru hér á landi.Og
hver gæti skýringin verið?kannski sú að það eru búnir að vera Kanar
þarna svo lengi!Ég tippa á það.
nennekkimeir.
»
27.07.2006 22:10:05 / oliingi
Hvenær kemur C.S.I.-Borðeyri á
skjáinn?
»
24.07.2006 22:53:40 / oliingi
Jæja!!!þá er ég búinn að ná gigtinni úr
fingrasetningaputtunum og fer að komast á skrið í
blogginu!.Nú hef ég að öllum líkindum,líkt og þjáningarbróðir
minn Zidane ákveðið að henda skónum upp í hillu sakir anna í
vinnu og fleira.Það líka gengur ekki að setja fjölskylduna í
þriðja sætið á eftir boltanum og aukavinnunni.Heldur í fjórða
sætið á eftir golfinu !!......En ég og Zidane eigum mjög
svipaðan feril að baki.Ég á til dæmis nokkra verðlaunapeninga
fyrir bestu ástundun !Hann er reyndar búinn að vinna
HM,EM,Meistaradeildina,ítölsku og spænsku deildirnar.EN það
er þó eitt sem ég hef framyfir hann og það eru djúp rimlaför
á rassinum eftir margra ára setu á varamannabekknum!!!!!
---------------------------------------------------------------------
Djöfull geta auglýsingar verið pirrandi maður.Kannist þið við
þessa"frábært partý í gær.Við komum aftur seint heim."Nivea
Q10.djöfuls hrotti.Dauðlangar ykkur ekki líka alltaf í freschetta
pizzu þegar þið sjáið írska álfinn setja pizzuna í eldspúandi
ofninn.Þetta hlýtur að vera eini maðurinn sem kom í prufu fyrir
þessa auglýsingu!!
----------------------------------------------------------------------
Var að koma úr alveg 5 daga sumarfríi frá Reykjavík.Þar var farið í
sund og í húsdýragarðinn og að sjálfsögðu í tvo mestu orkuþjófa
Íslands;kringluna og smáralind.Maður er náttúrulega svo mikil
dreifbýlistútta að maður var alltaf á celeb-vaktinni,og hér kemur
listi yfir celebið sem ég sá í borg óttans,allt frá semi celeb uppí
the real thing:Gillzenegger,bassaleikarinn í írafári(held ég),Björn
Hlynur leikari,Björgúlfur Guðmunds vék fyrir mér ,ég vék fyrir
Einari Bárðar ,Björgúlfur Takefusa,Steinunn í nylon!!,Raggi held
ég að hann heiti úr botnleðju,o,jæja,þetta er kannski ekki alveg
þotuliðið en samt gaman fyrir sveitavarginn að sjá'etta.Svo heyrði
ég líka oft í löggu og sjúkrabílum!!!! Eignaðist einnig hlut í
KFC.
----------------------------------------------------------------------
Gleymdi að segja frá kallakvöldinu árlega sem fram fór þann 15.júlí
síðasliðinn.Það var hist uppí bústaðnum hans Sigga í ásvideo um
tvöleytið og þaðan var farið á hestbak sem var bara snilld.Eftir
það var grillað oní okkur og hentum við okkur svo í pottinn og
tókum vel áðí!svo var farið inn í singstar rocks og buzz en þegar
hér er komið við sögu er var sögumaður orðinn frekar slompaður og
minni að svíkja hann.
En það var farið á bakaríið þar sem ekki var gaman í pólsku
byltingunni.(Kallið mig bara rasisma,ég er bara ekki að bonda við
þetta fólk).Þess ber að geta að aðeins varð eitt dauðsfall á þessu
kallakvöldi,það bar þannig að að hundurinn hans Jóa Jóns fór í
hanaslag og vann.!!
Jæja,gott í bili.
»
19.06.2006 21:39:44 / oliingi
Hey,af hverju er blowjob ekki kallað
suckjob??
»
14.06.2006 20:52:51 / oliingi
Long time no write!!Ég hef bara svo
djöfulli lítið að skrifa þannig að mér datt í hug að þið
mynduð stilla upp fjórum ellefu manna liðum þar sem velja má
hvern þann sem er á HM.
Eitt lið á að vera fallegasta liðið annað ljótasta,þriðja á að vera
svona best of blökkumenn og fjórða svona best of hvítingjar.(mæli
með að þið náið ykkur í svona HM blöð í olís bensínstöðvum,þar eru
myndir af flestum leikmönnum)
»
29.05.2006 21:57:30 / oliingi
Dalvík lyktar eins og rass í dag!!!!!! Og þið vitið af hverju!!!!
»
21.05.2006 01:39:19 / oliingi
OHH.Éti kanar skít!!
Sko,ég sé nú ekki oft eftir peningunum sem ég eyði,en ég hefði
alveg eins getað gefið einhverri krakkhóru fimmhundruðkallinn sem
ég eyddi í DVD mynd í kvöld!Þannig var að ég fór á leiguna og var
búinn að vera í stutta tímann og fann ekkert.Sé svo eina og hugsaði
"það var örugglega einhver búinn að segja mér að þessi væri góð" og
ég tek´ana.
Who´s your daddy? Kannist þið við hana?Hvílíkur djöfuls
hrotti.!!Þetta er svona american pie vonnabí mynd sem er svo
ógeðslega illa leikin að það er rosalegt!!
Og hún hefur upp á allann viðbjóðinn sem svona
ameríkuunglingamyndir hafa uppá bjóða. Verð ég þá fyrst að nefna
þessa fögru kvorterbekk stroff jakka með leðurermunum sem
vinsæli gæinn er alltaf í.
Þá ber að nefna helvítis klappstýrurnar!!Hvaða heilbrigða kona
lætur hafa sig út í það helvíti?Sjá þær svo alltaf með þessa pom
poms eða hvað þetta er kallað.Og alltaf er fyrirliðaklappstýran með
kvorterbekk- vinsæla-nördaberjandi-skiptímiðju stráknum!!
Nú í þriðja lagi þá er alltaf eins tónlist í þessum myndum.Svona
blink 182 kvartbuxna-tattúrokk. Og svo er það konungur
viðbjóðanna!Sjálft LOKABALLIÐ eða Prom eins og þeir kalla það.Ætli
þetta sé svona í alvöru þarna úti?Ætli þetta sé einhverskonar
prófsteinn á það hvernig lífið verður eftir lokaballið?Ætli
það SÉ líf eftir lokaballið?
Ætli við íslendingar verðum ekki komnir með þetta áður en langt um
líður,við sem öpum allt upp eftir kanaskrattanum!!Ja það veit ég
allaveganna að ef það birtast hér einhverjir gaurar til mín í svona
jökkum að bjóða dætrum mínum á prom að drekka eggjapúns þá kemur
sér vel að eiga nóg af golfkylfum!!!
Nei,þá hefði ég alveg eins getað horft á Júgurvision í kvöld!!!
Sá lokaþáttinn af ðe bjútí end ðe gík í gær.Þar var hann
erkinördinn hann Ríkharður og ég get svo svarið það ef ég hefði
þurft að búa með þessu í meira en klukktíma þá hefði ég annaðhvort
drepið hann eða mig!!Sjá´ann.Hann var eins og Woody(timbri)Allen á
spítti. Hann bara þagði ekki og sem betur fór tapaði hann.
Annars var ég að fatta ógeðslega fyndinn og góðan þátt á stöð 2 sem
heitir The Robinsons.
Endilega tékkið á þessum!
Ég verð að enda þetta á einum Hölla Vals!
Þið verðið að gera þetta einhvern tímann.Mig langar svo að vita
hvort þið finnið svona skrítn tilfinningu eins og ég fann.:Takið
ykkur einhvern tímann myndina eyes wide shut eftir Stanley
Kubrick,með Tom Cruise og Nicole Kidman.Horfið á hana í góðu
sjónvarpi með góðum græjum,og þegar þið hafið svo horft á hana
tékkiði þá á titillagi plötunnar Kid A með Radiohead og hlustið á
það hátt stillt og helst með heddfónum.Ég held að þetta tvennt sé
alveg óskylt en mér fannst ég bara vera kominn inn í húsið þar
sem...........ég skora á ykkur.p.s ég er ekki að reykja neitt!
Ástæðan fyrir því að ég nefni Hölla er sú að einhvern tímann vorum
við að vinna saman og hann spyr mig "Óli, hefurðu einhvern tímann
farið í sleik við kærustuna þína með heddfóna á eyrunum?!!"
Ég:"Nei,ég held bara ekki,nú?" "Æi,ég var búinn að heyra að það
væri eins og vera á tónleikum með Pink
Floyd!".................
»
Síður: 1 2
|
|